Sign In
 
   
 
   
 
 
 
   Algengar spurningar og vandagreining
 
 

Notandinn er með GN9120 höfuðtól með svona rafhlöðu. Hvað ber að gera?
Takið það úr sambandi og hættið að nota það. Farið á vefsíðuna www.Jabra.com/battery þar sem hægt er að panta skiptipakka ókeypis eða hringið (insert toll-free number, including hours of the day and days of the week staffed). Ef höfuðtólið er notað í starfi skal ræða við yfirmann upplýsingatæknideildar til að hægt sé að panta alla þá skiptipakka sem notandinn og samstarfsmenn hans þurfa.

Hvað á notandi með GN9120 höfuðtól sem eru með annars konar rafhlöðu að gera?
Aðeins GN9120 með þessari tilteknu ATL-rafhlöðu fellur undir þessa innköllun. Óhætt er að nota öll önnur höfuðtól frá GN sem og öll GN9120 höfuðtól með öðrum rafhlöðum.

Hve langan tíma tekur að fá nýju rafhlöðuna?
Við gerum hvað við getum til að koma því til skila eins fljótt og unnt er, en best er að gera ráð fyrir 5-7 dögum fyrir afhendingu.

Er óhætt að nota höfuðtólið á meðan beðið er eftir nýrri rafhlöðu?
Nei, takið höfuðtólið úr sambandi og hættið að nota það.

Hvernig er skipt um rafhlöðu?
Með skiptipakkanum fylgja þau verkfæri sem þarf og ítarlegar leiðbeiningar um hvernig á að fara að. Þær leiðbeiningar er einnig að finna á vefsetrinu www.Jabra.com/battery.

Má treysta því að nýja rafhlaðan valdi ekki sama vandamáli?
Við höfum skipt bæði um rafhlöðubirgi og rafhlöðutegund fyrir GN9120 línuna. Nýja rafhlaðan byggir á annarri tækni fyrir þennan búnað.

Hvað ef höfuðtólið nær ekki sambandi við heimastöðina?
Ef höfuðtólið nær ekki sambandi við heimastöðina (ef græna ljósið um samband kviknar ekki þegar þegar höfuðtólið er tekið af heimastöðinni) eftir að skipt er um rafhlöðu og hún hlaðin, skal gera eftirfarandi:

1. Takið straumbreytinn úr sambandi í nokkrar sekúndur
2. Setjið höfuðtólið á heimastöðina
3. Stingið straumbreytinum aftur í samband.
4. Þá blikka öll ljós á heimastöðinni í u.þ.b. 4 sekúndur. Eftir það logar aðeins á rafhlöðuljósinu.
5. Til að sannreyna að samband komist á skal taka höfuðtólið úr heimastöðinni og ganga úr skugga um að ljósið fyrir samband kvikni (eins og sýnt er á myndinni). Ef það gerist ekki skal endurtaka öll skrefin.

Ef einhver vandræði eru við þetta eða ef þú vilt fá ítarlegri teikningu skaltu fara á vefsíðuna okkar www.jabra.com/battery Athugið að þegar rafhlaðan er tekin úr eða straumbreytirinn tekinn úr sambandi (í a.m.k. fáeinar sekúndur) eru allar sérsniðnar stillingar fyrir höfuðtólið settar aftur á sjálfgildi frá verksmiðjunni.


Aðeins fyrir smásala:



Ég er með GN9120 á lager - skiptir þetta máli fyrir þær vörur og þarf að skipta um rafhlöðu í þeim?
Til að sjá hvort skipta þurfi um rafhlöðu í núverandi birgðum af GN9120 skal gæta að framleiðslukóðanum á miðanum. Vörur sem eru með framleiðslukóða 03/09 eða síðari eru ekki hluti af aðgerðinni til að skipta út GN9120 rafhlöðum því þær vörur eru þegar með nýju rafhlöðuna. Í vörum með framleiðslukóða 02/09 eða eldri (t.d. XX/08, XX/07 og XX/06) þarf að skipta um rafhlöðu nema að hún sé silfurlit að utan. Eina sem þarf að gera er að panta skiptirafhlöðu á vefeyðublaðinu á vefsíðunni Jabra.com.


Hvernig á að gæta að framleiðslukóðanum á miðanum

.
Vörukóðar 02/09 eða eldri: Pantið rafhlöðu til að skipta um nema að rafhlaðan sé silfurlit að utan.

.

Vörukóðar 03/09 eða síðar: Ekki þarf að skipta um rafhlöðu.

 

 
  PANTA RAFHLÖÐUR Í
  STAÐINN
 
     
 

Opnið viðeigandi eyðublað fyrir neðan til að panta rafhlöður í staðinn..

Notendur panti hér 

Samstarfsaðilar/smásalar panti hér

 
     
 
  GÆTIÐ AÐ RAFHLÖÐUNNI
 
     
 

Gætið að hvort skiptin eiga við um GN9120 rafhlöðuna áður en pantað er.

Farið eftir þessum leiðbeiningum
 
     
 
 
  Algengar spurningar og
  vandagreining
 
     
  Fylgið þessari krækju