Sign In
 
   
 
 
 
 
 
  Jabra GN9120 aðgerð til að skipta út rafhlöðum
 
 
 


Kæri Jabra GN9120 viðskiptavinur
Í samvinnu við yfirvöld öryggismála í Danmörku (Sikkerhedsstyrelsen) og Bandaríkjunum (U.S. Consumer Product Safety Commission) og aðrar eftirlitsstofnanir innkallar GN Netcom að eigin frumkvæði litíum rafhlöður frá ATL (ATL P/N 603028) sem notaðar eru í GN9120 þráðlausum höfuðtólum og dreift var á tímabilinu frá janúar 2005 til loka september 2008. Þessar litíum pólýmer rafhlöður geta ofhitnað vegna innri skammhlaups í rafhlöðunum og þannig valdið eldhættu. Rafhlaðan hefur aðeins verið notuð í þráðlausum GN9120 höfuðtólum. GN9120 tæki með framleiðslukóðann 03/09 eða síðar falla ekki undir þessa innköllun. Þessi tilkynning gildir ekki um þá sem nota önnur höfuðtól frá GN Netcom.

Leiðbeiningar um hvernig á að þekkja ATL-rafhlöðu í GN 9120 höfuðtóli

Headset and base illustration

Varan er í þremur hlutum: heimastöð, höfuðtól og straumbreytir. Lýsing þeirra hluta sem kunna að verða fyrir áhrifum er eftirfarandi:

- Ljós- eða dökkgrá heimastöð
- Heitið „GN Netcom“ eða „GN9120“ er framan á heimastöðinni og höfuðtólinu

Þessi aðgerð snertir ekki vörur sem falla að eftirfarandi lýsingu:
- GN9120 LR með svarta heimastöð

Leiðbeiningar um hvernig á að gá hvort GN9120 höfuðtólið er með rafhlöðu frá ATL
sem skipta þarf um

1. Takið höfuðtólið úr heimastöðinni og losið eyrnarpúðann af.
2. Losið arminn og hátalarahlutann frá áfestingarbúnaðinum (höfuðband/eyrnakrækja). Sjá mynd hér að neðan.

Höfuðtólið er þannig gert að notendur geti skipt um rafhlöðu og engin hætta fylgir þeirri aðferð.

Þegar búið er að opna höfuðtólið sést rafhlaðan. Ef höfuðtólið GN9120 er með rafhlöðu sem pakkað er í hvítt plast (sjá mynd fyrir neðan), verður að hætta notkun höfuðtólsins tafarlaust, taka straumbreytinn úr sambandi og panta rafhlöðu í staðinn. Ekki nota höfuðtólið fyrr en borist hefur rafhlöðuskiptipakki og skipt hefur verið um rafhlöðu.

Rafhlaða frá ATL klædd í hvítt. Hættið notkun höfuðtólsins og pantið rafhlöðu til að skipta um.

Click here for a picture of the Jabra GN 9120 Battery replacement Kit

Stop use of headset - Unplu and order replacement battery
Rafhlaða frá ATL klædd í hvítt. Hættið notkun höfuðtólsins og pantið rafhlöðu til að skipta um.

Veljið eina af krækjunum fyrir neðan til að panta rafhlöðu í staðinn.

Notendur panti hér
Samstarfsaðilar/smásalar panti hér

 

Stop use of headset - Unplu and order replacement battery
Ekki þarf að skipta um rafhlöðu sem pökkuð er í hvítt plast OG með miða sem á stendur „Made by Synergy“ (framleitt af Synergy). Notið höfuðtólið áfram.
  Stop use of headset - Unplug headset and order replacement battery

 

Stop use of headset - Unplu and order replacement battery
Ekki þarf að skipta út rafhlöðum sem eru í silfurlitum umbúðum. Notið höfuðtólið áfram.

 

Opnið viðeigandi eyðublað fyrir neðan til að panta rafhlöður í staðinn.
   Notendur panti hér
 
   Samstarfsaðilar/smásalar panti hér

 

 



 
  PANTA RAFHLÖÐUR Í
  STAÐINN
 
     
 

Opnið viðeigandi eyðublað fyrir neðan til að panta rafhlöður í staðinn..

Notendur panti hér 

Samstarfsaðilar/smásalar panti hér

 
     
 
  GÆTIÐ AÐ RAFHLÖÐUNNI
 
     
 

Gætið að hvort skiptin eiga við um GN9120 rafhlöðuna áður en pantað er.

Farið eftir þessum leiðbeiningum
 
     
 
 
  Algengar spurningar og
  vandagreining
 
     
  Fylgið þessari krækju  
     
 
  ÍSETNING
 
     
 

Þegar nýja rafhlaðan hefur borist skal fylgja eftirfarandi leiðbeiningum um ísetningu:

Leiðbeiningar um ísetningu (PDF)